









Light Speaker
384,50 USD
Menn hafa safnast saman við eld frá örófi alda; það lét heila okkar vaxa og kom okkur þangað sem við erum í dag. Við höfum greint eiginleika raunverulegra loga til þess að Light Speaker geti verið þinn eigin litli varðeldur.
Við fundum upp glóandi, titrandi bassa- og ljóseiningu sem situr í botni tækisins. Litbrigðin og fíngerða flöktið sem fylgir tónlistinni hafa verið vandlega stillt til að skapa andrúmsloft lifandi loga. Titringurinn og flöktið skapa í sameiningu náttúrulega, lifandi ljósupplifun.
Þessi hönnun er samruni hátalara sem dreifir hljóði í allar áttir og ljóskers úr gleri. Sígilt, hagnýtt og einfalt ljóstæki sameinað nýrri tækni.
Ytra byrðið úr áli er unnið af mikilli nákvæmni til að endast ævilangt. Sérsmíðaði sívalningurinn úr bórsílíkatgleri leyfir þér að sjá innri hlutina að störfum. IPX2-vottunin þýðir að þú getur tekið hann með út. Handfangið er eining sem má taka af eða festa á með hliðarskrúfunum eftir því hvernig þú notar tækið. Þetta er yfirlýsing um tímalausa rafeindatækni í einingum sem fellur að hvaða umhverfi sem er.
Light Speaker býr yfir einkennishljómi merkisins, með það að markmiði að vera „Transparent“ – ósvikinn hljómur sem miðlar sönnum ásetningi listamannsins. Miðað við stærð bjóða 2,5 tommu „full range“ hátalaraeining og „passive radiator“ Light Speaker upp á stóran og opinn hljóm með ríkum bassa og skörpum smáatriðum.
Hvelfd hönnunin dreifir hljóðinu 360 gráður og ásamt „passive“ bassahátalaranum skapar hún ríkulega hljóðupplifun. Þessi hátalari skapar stemninguna hvert sem þú ferð: svalirnar — ströndin — grillið — baðið — varðeldurinn — stóra ævintýrið!
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Efni
Mál
Þyngd
Innihald
Tæknilýsing
- Snúningshnappur fyrir ljós (og kveikt/slökkt)
- Snúningshnappur fyrir hátalara (og kveikt/slökkt)
- Bluetooth-pörunarhnappur (stýrir einnig TWS, L/R/S-stillingu, „next track“ og endurstillingu á verksmiðjustillingar)
- Tíðnisvið: 60Hz–18kHz
- Bluetooth: útgáfa 5.0
- True Wireless Pairing-stilling
- 1 x 2,5” „full range“ hátalaraeining
- 1 x 3” „passive radiator“
- Línuinngangur 3,5mm
- Útgangsafl: 5W
- Rafhlaða: 3500mAh Li-ion
- Rafhlöðuending: 10 klst.
- Rafhlöðustöðuhnappur og 4 x LED-ljós
- Litahitastig ljóss: 900–3500 K
- Snúningshnappur fyrir ljós á tækinu
- Sérhönnuð titrandi LED-dreifilinsa
- Veðurþol: IPX2
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.