Tíbrá by nomad.
Með hækkandi sól, á ferð um strendur landsins, má í hitamistri sjá hyllingar dansandi yfir jörðu - náttúruundrið sem við þekkjum sem Tíbrá. Orðið hefur táknræna merkingu um þær góðu minningar, ró og tíma sem við höfum varið saman á ferðalögum. Meðfram ströndum landsins má finna fjársjóð af náttúrugripum, steinum, kuðungum, skeljum og litríku gleri sem sjórinn hefur mótað. Form og línur hafsins, ásamt lögun þessara gripa er innblástur að skarti okkar sem við útfærum í tímalausum og klassískum stíl. Við vonum að Tíbrá fái að njóta sín um ókomin ár með þér - í þínum ævintýrum.