Frítt með Dropp á afhendingarstað ef keypt er fyrir 15.000 kr eða meira
Nomad
isen
×

Sendingar og Afhending

Sendingar og afhending

Afgreiðsla pantana

Pantanir innanlands eru afgreiddar innan 1–2 virkra daga og pantanir til útlanda innan 2–3 virkra daga. Pantanir eru ekki afgreiddar um helgar eða á almennum frídögum. Pöntun sem berst á föstudegi eða um helgi er því afgreidd næsta virka dag.

Þegar pöntun hefur verið send færð þú tölvupóst með upplýsingum um sendinguna.

Sendingar innanlands

Við sendum pantanir innanlands með Dropp og Póstinum. Hægt er að velja um afhendingu á Dropp-stað, heimsendingu eða sendingu með Póstinum um allt land. Verð hvers afhendingarmáta kemur fram áður en pöntun er greidd.

Frí heimsending með Dropp er af pöntunum fyrir 15.000 kr. eða meira.

Sótt í verslun

Þú getur sótt pöntunina í verslun okkar á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, þér að kostnaðarlausu. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar. Hafðu pöntunarnúmerið meðferðis.

Sendingar til útlanda

Pantanir til útlanda eru sendar með Póstinum eða DHL. Áætlaður afhendingartími eftir að pöntun er send:

  • Evrópa og Norðurlönd: 5–10 virkir dagar með Póstinum, 2–4 virkir dagar með DHL
  • Norður- og Suður-Ameríka: 10–14 virkir dagar með Póstinum, 2–3 virkir dagar með DHL

Kaupandi greiðir aðflutningsgjöld, tolla og skatta sem lagðir eru á sendinguna í móttökulandi. Þessi gjöld eru ekki innifalin í verði vörunnar eða sendingarkostnaði.

Skil og skipti

Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.

Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.

Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.

Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.

Gallaðar vörur

Um gallaðar vörur gilda lög nr. 48/2003 um neytendakaup. Ef vara reynist gölluð skaltu hafa samband við okkur á info@nomadstore.is eins fljótt og hægt er eftir að gallinn kemur í ljós, helst með mynd. Við bætum úr gallanum, látum þig fá nýja vöru eða endurgreiðum kaupin, og greiðum sendingarkostnað vegna gallaðrar vöru.

Frestur til að kvarta vegna galla er tvö ár frá afhendingu, en fimm ár fyrir vörur sem ætlað er að endast verulega lengur.

Hafa samband

Nomad Ísland ehf., Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík
info@nomadstore.is · sími 537 5300