

Voyer Verde 7ml
Travel
49,00 USD
Í aflíðandi hlíð í spænska bænum Pedramala hefur upplituð Mercedes-bifreið verið skilin eftir á vald náttúrunnar. Hún hvílir undir þykkri og villtri grænni slæðu, nánast ósýnileg þeim sem ekki taka vel eftir. Undir laufinu skýla innréttingar úr lakkríslituðu leðri sér fyrir hádegissólinni. Hlý sýprustrén í skugga Sierra Bernia-fjallanna. – Pedramala, Spánn 2008
„Bergamot“, mandarína og sýprustré blandast blómstrandi írisi og ylang ylang. Fenníka, reykelsi og viður gefa jurtakenndan, grænan og kvoðukenndan ilm.
Lykiltónar
„Bergamot“, mandarína, sýprus, rósaviður, fenníka, íris, ylang ylang, „Patchouli“, leður, sedrusviður, reykelsi
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.