Frítt með Dropp á afhendingarstað ef keypt er fyrir 15.000 kr eða meira
Nomad
isen
Vintage Frame eyrnalokkar – Tiger Eye, Silfur
Vintage Frame eyrnalokkar – Tiger Eye, Silfur

Vintage Frame eyrnalokkar

88,50 USD

Vintage Frame eyrnalokkarnir okkar sækja innblástur í ættargripi og gamla myndaramma. Tvöfaldur, mótaður rammi umlykur tígrisaugastein og skapar útlit sem er eins og nútímalegur dýrgripur.

Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg

Kemur í Tíbrá gjafaöskju

Efni
Sterling silfur og ródín
Umhirða

Hannað til daglegrar notkunar. Sterling silfur er vatnshelt og má fara með í sturtu og sund. Forðastu þó náttúrulaugar og lón sem eru rík af steinefnum, því þau geta dökkvað silfrið. Forðastu beina snertingu við ilmvatn, krem og sterk hreinsiefni. Þurrkaðu varlega af með mjúkum, þurrum klút og geymdu á þurrum stað þegar skartgripurinn er ekki í notkun.

Mál
Þvermál steins: 12 mm. Ytra þvermál: 17 mm.
Sending og skil

Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.

Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.

Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.

Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.