








Small Transparent Speaker
Svartur
655,50 USD
Þessi hátalari er smíðaður úr einum álramma og er einfaldleikinn holdi klæddur. Ekkert óþarft skraut – aðeins það sem er nauðsynlegt og gegnir hlutverki. Hátalarinn er hannaður til að endast alla ævi á heimilinu. Herta glerið fellur eðlilega að hvaða stíl sem er og einingaskipt smíðin gerir kleift að uppfæra hann með nýrri tækni með tímanum.
Þétt lokaði fjögurra lítra kassinn og sérhannaðar þriggja tommu hátalaraeiningar stuðla að öguðum flutningi tíðnisviðsins. Fínstilltur DSP-kubbur (stafræn merkjavinnsla) tryggir hljómgæði á við hljóðver. Með Small Transparent Speaker heyrir þú lagskipt blæbrigði, jafnvel þótt þú sért langt frá hátalaranum.
Small Transparent Speaker er framtíðar gripur, þökk sé einingaskiptri hönnun sem gerir einfalt að uppfæra íhluti. Undir hátalaranum er hólf sem getur hýst og knúið ýmsar uppfærslur, svo sem nýja raddstýringarstaðla, Bluetooth og þráðlausa tækni.
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Mál
Þyngd
Tæknilýsing
- Hátalaraeiningar V/H: 2 × 3’’ (Full Range)
- Magnari: innbyggður Class D (virkur)
- Útgangsafl: 2x 15W
- Rúmmál lokaðs kassa: 3 l
- Tíðnisvið: 60 Hz - 20 kHz ±3 dB á ás
- Hágæða stafræn merkjavinnsla (DSP)
- Stjórntakkar að framan: hljóðstyrkur
- Línuinngangur: 2 x 3,5mm (að framan og neðan)
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.