







Tíbrá hálsmen
144,50 USD
Tíbrá hálsmenið sækir innblástur í sólarglampa á vatni og glitrar þokkafullt við hverja hreyfingu. Hannað í endingargóðu „14k Gold Vermeil“ eða sterling silfri fyrir áreynslulausa, daglega notkun.
- Munaður á viðráðanlegu verði: „Gold vermeil“ gefur útlit og áferð skíragulls fyrir brot af verðinu.
- Ending: Með þykku lagi af 14k gulli yfir sterling silfri er „vermeil“ mun endingarbetra en hefðbundin gullhúðun. Gulllagið á „gold vermeil“ er að jafnaði 2,5 míkron á þykkt, sem er allt að 5 sinnum þykkara en á hefðbundnum gullhúðuðum skartgripum og 100 sinnum þykkara en á „flash“-húðuðum skartgripum.
- Ofnæmisvænt: Þar sem sterling silfur er grunnurinn er „gold vermeil“ öruggt fyrir viðkvæma húð.
- Umhverfisvænn kostur: Í „gold vermeil“ er notað endurunnið sterling silfur, sem gerir það að sjálfbærari og umhverfisvænni valkosti.
- Fjölhæfni: Fullkomið bæði til daglegrar notkunar og við sérstök tilefni, þökk sé endingunni og tímalausri hönnun. Forðastu að hafa „gold vermeil“ skartgripina í vatni daglega svo þeir endist sem lengst.
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Kemur í Tíbrá gjafaöskju
Efni
Umhirða
Hannað til daglegrar notkunar. Til að varðveita útlit og áferð skartgripsins mælum við með að taka hann af fyrir sturtu og sund. Þurrkaðu varlega af með mjúkum, þurrum klút og geymdu á þurrum stað þegar skartgripurinn er ekki í notkun.
Mál
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.