Frítt með Dropp á afhendingarstað ef keypt er fyrir 15.000 kr eða meira
Nomad
isen
Soft Serve Portable Vanilla B.
Soft Serve Portable Vanilla B.
Soft Serve Portable Vanilla B.
Soft Serve Portable Vanilla B.
Créme Atelier

Soft Serve Portable Vanilla B.

269,50 USD

Soft Serve Portable er rafhlöðuknúin og örlítið minni útgáfa af mest selda lampanum okkar, Soft Serve Lamp. Lampanum fylgir hvít hleðslusnúra úr textíl með segultengi (USB) svo þú getur tekið hann með þér hvert sem er.

SOFT SERVE LAMP

Vann German Design Award 2024 „Excellent Product Design - Lighting“, Scandinavian Design Awards 2023 „Detail of the year“, Plaza Interiors Sustainability awards 2022 og Iconic awards 2024 „Lighting“, og komst á stuttlista („Shortlisted“) Dezeen awards 2023.

Soft Serve Lamp sækir innblástur í léttan og loftkenndan mjúkís sem vekur ljúfa nostalgíu – þessi mínimalíski lampi gefur heimilinu einmitt réttan skammt af sérstöðu með skandinavískri fagurfræði, ríkulegri áferð og ljóðrænum, tímalausum sjarma.

Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg

Efni
Skermur/fótur: þrívíddarprentað endurunnið PLA; aðrir hlutar: ABS/PP/járn
Mál
H: 23 cm B: 20,5 cm
Þyngd
0,6 kg
Notkun
Lampinn er eingöngu ætlaður til notkunar innandyra. Það má taka hann út en hann verður að geyma innandyra.
Tæknilýsing
  • Spenna: hleðsluinntak 5,0 V, 2 A
  • Ljósgjafi: 2835
  • Umhverfishiti -10~45 ℃
  • Líftími LED 50.000 klst.
  • Rafhlaða: notkunartími fullhlaðin 10 klst.; hleðslutími 5–6 klst.
  • Rafhlaða og LED frá Crème Atelier eru skiptanleg og fást hjá Crème Atelier
  • Birtustilling: 3 þrep (100%, 65%, 35%)
  • Hleðslusnúra: hvít micro USB segulsnúra úr textíl (2 m)
  • Innbyggð rafhlaða: 2 stk. 18650
  • Vottun: CE, IP44
Sending og skil

Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.

Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.

Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.

Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.