Frítt með Dropp á afhendingarstað ef keypt er fyrir 15.000 kr eða meira
Nomad
isen
Oval hengi úr silfri með hvítri perlumóður í sporöskjulaga umgjörð og hring að ofan, tvö saman
Oval hengi með perlumóður hangandi á silfurlitum Charm Huggies hring, með áletruninni Tíbrá og 925

Oval hengi

57,50 USD

Perlumóðir er þekkt fyrir róandi orku og er talin efla tilfinningalegt jafnvægi. Hengin eru úr sterling silfri með ródíumhúðun, sem gefur þeim bjartan gljáa og ver þau gegn því að falla á.

Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg

Kemur í Tíbrá gjafaöskju

Efni
Sterling silfur / ródíumhúðað
Mál
Stærð hengis: 8,5 mm x 5 mm
Sending og skil

Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.

Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.

Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.

Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.