



Nylon Shoulder Bag
Caper
81,00 USD
Örlítið mjúk en þó formföst axlartaska frá Baggu sem rúmar allt að 13–14 tommu fartölvu. Innri rennilásvasi og lyklaól með karabínu sjá til þess að allt eigi sinn stað, og vattstungna ólin er stillanleg. Dempaður, ólífugrænn Caper-litur.
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Efni
Mál
Tæknilýsing
- Rúmar allt að 13–14 tommu fartölvu
- Innri vasi með rennilás
- Innri lyklaól með karabínu
- Vattstungin axlaról 70 cm (stillanleg)
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.