

Meeting Friends
28,50 USD
Samræðuspjöld sem efla tengslin
52 spjöld með spurningum og æfingum fyrir dýpri og innihaldsríkari samræður við vini.
Að hitta vini sína er ein af stóru ánægjustundum lífsins. Við hlökkum til að tengjast, deila fréttum og finna aftur fyrir væntumþykjunni og gleðinni sem við eigum saman. En það er ekki endilega jafn einfalt og það hljómar að eiga frábæra stund saman, jafnvel með fólki sem við þekkjum vel. Okkur tekst ekki alltaf að hitta á réttu umræðuefnin og segja það sem raunverulega skiptir máli.
Í þessum spilastokki eru spurningar sem tryggja að samverustundirnar verði bæði gleðiríkar og áhugaverðar. Spurningarnar leiða samtalið eins og það flæðir best, frá hversdagslegri umræðuefnum yfir í það sem er einlægt, djúpt og hlýtt.
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Mál
Innihald
Útgefandi
Tungumál
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.