




Jardins De Misfah 50ml
139,50 USD
Í þorpinu Misfah Al Abreyeen er Þúsund og ein nótt innan seilingar. Innan um blómum skrýdd stræti, glaðværan nið vatnsins sem streymir af einni verönd á aðra og pálmatré svo langt sem augað eygir er ekki hægt annað en að minnast orða Amin Maalouf.
„Döðlubiti geymir ekki aðeins aldinkjöt sem nærir líkamann, heldur einnig sætuna, ilminn og litinn sem næra andann.“
„Jardins de Misfah“ er hvíld fyrir ilmskynið, augnablik sem stendur kyrrt í tímanum, samhljómur ilma þar sem ferskt hvísl blómablaða rennur saman við tóna af rjómakenndum döðlum, hunangi og sætu vatni.
„Top notes“
Kardimommur · Múskat
„Heart notes“
Döðlutónar · „Rose Absolute“ · „Rose Essence“
„Base notes“
Saffran · Möndlur
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Notkun
Úðaðu á púlsstaði, svo sem úlnliði, háls og bak við eyrun, úr um 15 cm fjarlægð. Ekki nudda ilminum inn í húðina, þá dofnar hann fyrr. Geymdu flöskuna á svölum stað, fjarri sólarljósi.
Þyngd
Innihald
Ilmnótur
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.