


Hús
Torfbær Skógar
16,50 USD
Íslandshús er lítil húsaröð innblásin af íslenskri byggingarhefð. Torfbæir voru híbýli Íslendinga allt frá landnámi og fram í byrjun 20. aldar, aðlagaðir að hörðu veðurfari og takmörkuðum byggingarefnum. Veggirnir voru hlaðnir úr torfi og grjóti sem einangraði vel og timburgrindin var gjarnan smíðuð úr rekaviði. Þykk torfþökin héldu hitanum inni og runnu fallega saman við landslagið, enda voru húsin lág og þétt og stóðu oft mörg saman í þyrpingu. Torfbæirnir að Skógum undir Eyjafjöllum eru meðal þeirra sem varðveist hafa og minna á þessa merku byggingarhefð sem lagðist af þegar ný byggingarefni tóku við.
Húsin sóma sér vel í gluggakistunni, á bókahillunni eða á skrifborðinu, ein og sér eða öll saman í pínulitlu þorpi.
Nánar
- Gjafaaskja
- Módel: lengd 3 cm × dýpt 4 cm × hæð 3 cm
- Ekki leikfang (4+ ára)
- Hönnun: Nomad Reykjavík
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Mál
Innihald
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.