


Íslandshús
Torfbærinn Glaumbær
20,50 USD
Íslandshús er lítil húsaröð innblásin af íslenskri byggingarhefð. Fyrstu híbýli landnámsmanna voru reist úr torfi og grjóti, byggingarefnum sem voru vel þekkt í norður-Evrópu löngu fyrir landnám Íslands. Í fyrstu voru húsin stök skálahús, en á 15. öld var farið að byggja fleiri hús saman og tengja þau með göngum, það byggingarlag kallaðist gangabær. Seint á 18. öldinni tóku burstabæirnir við, en bygging húsa úr torfi og grjóti lagðist endanlega af í upphafi 20. aldar. Glaumbær í Skagafirði er einn þekktasti gangabær landsins og fyrirmynd þessa litla húss.
Húsin sóma sér vel í gluggakistunni, á bókahillunni eða á skrifborðinu, ein og sér eða öll saman í pínulitlu þorpi.
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Mál
Innihald
Tæknilýsing
- Ekki leikfang (4+ ára)
- Hönnun: Nomad Reykjavík
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.