



Creative Thinking Cards
28,50 USD
Ræktaðu ímyndunarafl, hugvit og leik
Ein sterkasta – en um leið óljósasta – þrá margra okkar er að vera meira skapandi. En hvernig náum við því? Sköpunargáfan er ekki frátekin fyrir listamenn – hún snýst um hvernig við hugsum, könnum og leikum okkur. Hún er færni sem við getum ræktað og laðað varlega fram í okkur sjálfum.
Þessi spjöld eru verkfæri sem hjálpar okkur að vekja hugmyndaríku og frumlegu hliðarnar á huganum. Hver spurning býður okkur að koma sjálfum okkur á óvart, spyrja óvenjulegra spurninga og enduruppgötva löngunina til að skapa eitthvað nýtt.
Leiðbeiningar
Spjöldin má nota ein og sér eða með vinahópi. Þau nýtast sem innblástur, sem kveikjur að dagbókarskrifum eða til að koma samræðum af stað.
- Stokkaðu spjöldin og dragðu eitt af handahófi
- Lestu spurninguna – í hljóði eða upphátt fyrir vinahópinn
- Svaraðu af heiðarleika, forvitni og leikgleði. Leyfðu þér að fara út fyrir efnið ef ímyndunaraflið leiðir þig þangað
Dæmi um spurningar
- Hver er mest skapandi manneskja sem þú þekkir? Hvað hefur hún kennt þér?
- Finndu upp hlut til heimilisins sem leysir lítið en mikilvægt vandamál í lífi þínu
- Voru einhver áhugamál sem þú elskaðir í æsku en hefur síðan lagt á hilluna?
- Ljúktu setningunni: Sköpunargáfan deyr í mér þegar …
- Haltu á lofti eða lýstu því sem veitir mestan sjónrænan innblástur í rýminu sem þú ert í núna. Hvað gerir það fallegt í þínum augum?
- Hvað myndir þú gera ef þú ættir eina viku án allra skyldna?
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Mál
Innihald
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.