

Young Air 50ml
123,00 USD
Young Air frá CRA-YON er ferskur, grænn og viðarkenndur ilmur með fágaðan, léttan karakter.
Í upphafi mætast sýprusviður, matcha-te og óvenjulegur pappírs- og blektónn. Fíkja, kryddnegull, kanill, hinokiviður og leður gefa ilminum hlýju og dýpt, áður en mjúkur sandalviður, sedrusviður og hvítur moskus taka við.
Útkoman er nútímalegur ilmur sem helst nærri húðinni og hentar jafnt í vinnuna sem við hversdagsleg tækifæri.
Vegan og fyrir öll kyn.
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Ilmnótur
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.