

Vanilla CEO 50ml
123,00 USD
Vanilla CEO er nútímaleg útgáfa af klassískum vanillukeim, hér í góðum félagsskap mjúks viðar og ferskra tóna af appelsínublómi. Ilmurinn kveikir kraft í þeim sem ber hann, þökk sé endorfínörvandi tónum af appelsínublómi og safaríkri mandarínu. Hann jarðtengir þig með jafnvægisríku hjarta úr „Vanilla Orchid“, sem hvílir á grunni úr hlýju „Amber“ – ómissandi ilmur fyrir þau sem taka stjórnina.
Þessi ilmur snýst um kraft, en fágaðan og fínlegan. Hann minnir okkur á að kraftur er ekki alltaf það sama og styrkur og ákefð. Kraftur getur falist í mýkt, kraftur getur falist í góðvild og kraftur getur falist í vissu fremur en hárri röddu. Vanillan og mjúki viðurinn fara einstaklega vel saman og endast vel á húðinni án þess að verða nokkurn tíma yfirþyrmandi.
Af hverju bjuggum við hann til?
„Top notes“
Alpafjóla, appelsínublóm, „Bergamot“, mandarína
„Heart notes“
„Vanilla Orchid“
„Base notes“
„Amber“, viður
Stemning
Frelsandi, geislar af ró og jarðtengdri orku.
100% vegan / Án dýratilrauna / Unisex
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.