
Passport Amour
Ilmvatn í vasastærð, 10 ml
49,00 USD
Passport Amour er heillandi ilmur sem sameinar fíngerðan kjarna rósarinnar og jarðbundna auðlegð „Agarwood“.
Þessi munúðarfulli ilmur umlykur skilningarvitin og flytur þig í vídd þar sem eilíf fegurð ræður ríkjum. Hann er fullkomnaður með hlýjum og notalegum tónum af ambru – hver úði er eins og langþráð, ástúðlegt faðmlag. Ilmurinn skilur eftir sig dásamlega, sæta og jarðbundna slóð.
Innblástur ilmsins
Passport Amour er ilmtúlkun á rómantísku næmi og seiðandi andrúmslofti kvikmyndar Wong Kar-wai, „In the Mood For Love“. Passport Amour fangar hina áleitnu, fallegu og angurværu mynd sem myndin dregur upp af ástinni og vekur seiðmagn Hong Kong sjöunda áratugarins með margslunginni og framandi blöndu ilmefna.
„Top notes“
Damaskrós
„Heart notes“
„Agarwood“, nellika, „Patchouli“, sedrusviður
„Base notes“
Moskus, sandalviður, ambra
Stemning
Sjálfsást, segulmagn, vekur aðdráttarafl
100% vegan / án dýratilrauna / fyrir öll kyn
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.