



Continental 50ml
123,00 USD
Hugsaðu þér fyrsta flokks farmiða fyrir lyktarskynið til heimsálfa veraldar. Hver af ilmblöndunum sjö („accords“) er eins og ferðalag um krydd, andrúmsloft og plöntur frá ólíkum heimshluta: Ástralía (ylang), Afríka (reykelsi), Evrópa (sýprus), Suður-Ameríka (appelsína, sítrónugras), Asía (minta, kóríander), Karíbahafið (sítrus og ferskleiki) og Norður-Ameríka (sedrusviður).
Ilmurinn hefur ríkan leður- og reyktón. Hann er rjómakenndur og fyllingarmikill, og ótal tónar renna áreynslulaust saman. Hann opnast með þroskuðum ferskleika brasilískrar appelsínu í bland við franskan sýprus og indverska mintu, sem leggja grunninn að mildum, ilmandi og reykkenndum tónum kóríanders og reykelsis. Grunnurinn úr leðri og atlassedrusviði skapar fallega dýpt á húðinni. Þetta er ilmur sem á heima í hverju ilmsafni vegna sterks og einstaks karakters sem vekur athygli en lætur þig samt vera stjörnu sýningarinnar.
Innblástur ilmsins
Continental varð til þegar heimurinn var í lokun árið 2020 og þráin eftir ferðalögum og að kanna heiminn var meiri en nokkru sinni fyrr. Þetta er viðarkenndur ilmur með úrvali hráefna sem valin voru í samstarfi við ilmmeistarann Christian Provenzano. Ilmur lætur þig ferðast án þess að hreyfa þig.
„Top notes“
Brasilísk appelsína, franskur sýprus, indversk minta, ylang frá Madagaskar
„Heart notes“
Kóríander, sítrónugras frá Gvatemala, leðurblanda („Leather accord“), reykelsi frá Sómalíu
„Base notes“
Atlas- & Virginíusedrusviður, „Vetiver“ frá Haítí, sandalviður, „Oud Accord“, „Cashemere Musk“, ambra
Stemning
Kraftur, jarðtenging, vekur forvitni
100% vegan / án dýratilrauna / fyrir öll kyn
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.