

Caramel Days 50ml
123,00 USD
Velkomin á sætari hlið lífsins. Caramel Days ilmurinn sækir innblástur í litlu, dýrmætu augnablikin sem fá okkur til að staldra við, anda og upplifa heiminn til fulls: glaðlegt fuglatíst, hlátur sem tekur frá þér andann, jarðtengjandi snertingu jarðarinnar undir fótum þér – og ánægjulegt hrós frá ókunnugum sem tekur eftir því hversu dásamlega þú ilmar.
Þessi upplífgandi ilmur hefst á notalegum karamellutónum sem opnast mjúklega í bjarta, sítruskennda blöndu af brasilískri appelsínu og mandarínu. Snertur af suðrænum kókos, jasmínu og ríku kakói gefa hlýja, sólríka dýpt og skapa ilm sem geislar af sjálfstrausti og gleði.
„Top notes“
Kókos, brasilísk appelsína, ítölsk mandarína
„Heart notes“
„Frangipani“, egypsk jasmína, „Heliotrope“
„Base notes“
Vanilla, „Ambroxan“, kakó
Stemning
Jarðtengjandi, áhyggjulaus, munúðarfullur
Innihaldsefni
Alcohol Denat., Parfum (Fragrance), Aqua (Water), Benzyl Alcohol, Sodium Benzotriazolyl Butylphenol Sulfonate, Pentaerythrityl Tetra-Di-T-Butyl Hydroxyhydrocinnamate, Benzyl Benzoate, Benzyl Salicylate, Citronellol, Coumarin, Farnesol, Geraniol, Hydroxycitronellal, Limonene, Linalool
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.