

Art Life 50ml
123,00 USD
Art Life vekur skilningarvitin, eykur orkuna og örvar sköpunargleðina með samsetningu af sítrus, „Neroli“ og „Tonka“. Eins og að stíga inn í loftmikla, bjarta vinnustofu í Marrakess, umvafin hlýjum vindum af „Bergamot“ og fíkju.
Ilmurinn opnast með björtum, hressandi sítrustóni sem fangar athyglina. Eftir um það bil 15 mínútur birtist ljúfur, rjómakenndur og sætur fíkjutónn og ilmurinn sest í hreinan, jarðbundinn ilm með snert af ávaxtakeim.
Umsögn um Art Life
„Við elskum jákvæðnina í þessum ilmi. Cra-yon hefur notað ilmkjarnaolíur sem efla sköpunargleði og jákvæðni, svo hvernig er hægt annað en að elska hann?! Við setjum þennan ilm á okkur og finnum að við erum lifandi; í Art Life er lífsþorsti, tilhlökkun fyrir deginum framundan og þakklæti fyrir daginn sem er liðinn. Art Life gefur aðeins góða strauma.“
„Top notes“
Mandarína, „Bergamot“, sítróna, greipaldin
„Heart notes“
Lilja, „Neroli“, rós, fíkja
„Base notes“
Sedrusviður, púðurkennt moskus, jarðbundnir tónar, „Vetiver“, mjúkur viður, „Tonka“
Stemning
Sköpunargleði, skýrleiki og birta.
100% vegan / án dýratilrauna / fyrir öll kyn
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.