Frítt með Dropp á afhendingarstað ef keypt er fyrir 15.000 kr eða meira
Nomad
isen
Blár CRA-YON Continental 50ml ilmvatnskassi, séður á ská með nafni merkisins á hliðinni
CRA-YON Continental 50ml ilmvatnsglas með gulgrænum vökva og ljósu loki, séð á ská
CRA-YON Continental 50ml ilmvatnsglas með gulgrænum vökva og ljósu loki, framhlið
Blár CRA-YON Continental 50ml ilmvatnskassi, framhlið
Cra-Yon

Continental

50 ml

123,00 USD

Continental opnast með ferskri appelsínu, sýprus og myntu, og undir liggja mildir og reykkenndir tónar af kóríander og reykelsi. Leður og sedrusviður gefa fallega dýpt á húðinni.

Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg

Notkun

Úðaðu á púlsstaði, svo sem úlnliði, háls og bak við eyrun, úr um 15 cm fjarlægð. Ekki nudda ilminum inn í húðina, þá dofnar hann fyrr. Geymdu flöskuna á svölum stað, fjarri sólarljósi.

Innihald
50 ml · eau de parfum
Ilmnótur
Toppnótur: Brasilísk appelsína · Franskur sýprus · Indversk mynta · Ylang frá Madagaskar Hjartanótur: Kóríander · Sítrónugras frá Gvatemala · Leðurblanda · Reykelsi frá Sómalíu Grunnnótur: Atlas- & Virginíusedrusviður · Vetiver frá Haítí · Sandalviður · Oud-tónn · Kasmírmoskus · Ambra
Sending og skil

Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.

Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.

Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.

Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.