
Brain Freeze
24,50 USD
Brain Freeze 2.0 spilið er einstaklega skemmtilegt og gengur hratt fyrir sig. Allir geta spilað og það tekur aðeins eina mínútu að útskýra hvernig leikurinn gengur fyrir sig. Tilvalin möndlugjöf, "secret santa" og/eða leynivinagjöf.
Leikurinn virkar þannig að viðkomandi dregur spil t.d. með orðinu "Frægar Byggingar", sá sem heldur á spilinu segir sitt val t.a.m. "Emipre State" en þá verður næsta manneskja að nefna aðra bygginu og síðan koll af kolli. Sá sem er orðin/n uppiskroppa með hugmyndir og getur ekki nefnt fleiri byggingar, tapar lotunni.
Nánar
- Spil: Orðaleikur
- Útgefandi: Spicy Capital
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Útgefandi
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.