Frítt með Dropp á afhendingarstað ef keypt er fyrir 15.000 kr eða meira
Nomad
isen
Alda – Essence Serum
Alda essence serum í gegnsætt glas, haldið upp að andliti
Alda – Essence Serum
Dóttir Skin

Alda

Essence Serum

73,50 USD

Alda [‘alːta] essence serum er vara sem styður endurnýjun húðar með mildri ensímvirkri húðslípun, á sama tíma og það veitir raka og örvar kollagenframleiðslu. Essence-ið vinnur gegn öldrun húðarinnar og ýmsum áskorunum eins og t.d.

Einkaleyfisvarin ensímtækni

  • Náttúrulegt sjávarensím úr íslenskum þorski sem virkjast við líkamshita;
  • Leysir upp dauðar húðfrumur og óhreinindi í húð;
  • Styrkir ysta lag húðarinnar (e. Epidermis) og styður við heilbrigða örveruflóru (e. Microbiome) í húð.

Inniheldur Hyaluronic sýru

  • Hyaluronic sýra er náttúruleg fjölsykra sem finnst í húð, liðvökva og bandvef. 
  • Dregur úr ásýnd öldrunar í húð (þ.e. hrukkur og fínar línur) og veitir húðinni meiri ljóma og fyllingu. 
  • Dregur úr vatnstapi á ysta lagi húðarinnar (e. TEWL) 
  • Langflestar húðgerðir hana þola vel, m.a. þau sem eru viðkvæm í húð.

Klínískt rannsökuð formúla

  • Sannprófuð virkni, byggð á íslensku rannsóknarstarfi yfir áratugi.
  • Vinnur með náttúrulegum takti húðarinnar sem skilar hreinni, mýkri og rakameiri áferð, dropa fyrir dropa.
  • Örvar endurnýjun húðarinnar
  • Róandi áhrif á ertingu vegna þurrks, útbrota, flugnabita og sólbruna.
Berðu 2–4 dropa á hreina húð í andliti, á hálsi og bringu. Hentar öllum húðgerðum, þar með talið viðkvæmri húð. Má nota kvölds og morgna og eins oft og þörf er á.  

Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg

Notkun
Berið 2 til 4 dropa á hreina húð á andliti, hálsi og bringu. Hentar öllum húðgerðum, þar með talið viðkvæmri húð.
Þyngd
80 gr.
Innihaldsefni
Glycerol, Aqua, Alcohol, Sodium Hyaluronate, Calcium Chloride, Tromethamine, Hydrochloric Acid, Trypsin
Innihald
Ein flaska af Alda Serum
Ilmnótur
Enginn ilmur
Sending og skil

Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.

Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.

Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.

Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.