![Alda ['alːta] gel moisturiser](https://ycgkzlajngpbtabeptpy.supabase.co/storage/v1/object/public/web_images/f9140491-910a-43d7-a239-cd66628bb2a3/ab3fb27d-a6a2-43a9-9cc4-8916eca4930c/alda-al-ta-gel-moisturiser-1-fd66adf3.jpg)
![Alda ['alːta] gel moisturiser](https://ycgkzlajngpbtabeptpy.supabase.co/storage/v1/object/public/web_images/f9140491-910a-43d7-a239-cd66628bb2a3/ab3fb27d-a6a2-43a9-9cc4-8916eca4930c/alda-al-ta-gel-moisturiser-2-62ffb4ad.jpg)
Alda ['alːta] gel moisturiser
98,50 USD
Alda [ˈalːta] gel moisturiser er létt gel rakakrem sem er hannað til að endurheimta og vernda ysta lag húðarinnar. Rakakremið vinnur einnig gegn öldrun húðarinnar og ýmsum áskorunum eins og þurri húð, útbrotum, bólum og sólbruna. Inniheldur einungis 11 innihaldsefni, þ.á.m. íslensk sjávarensím og hyaluronic sýru. • Sjávarensímin slípa húðina á mildan hátt og örva kollagenframleiðslu, án þess að raska örveruflóru húðarinnar. • Hyaluronic sýran, sem er náttúruleg fjölsykra, gerir gelið einstaklega rakagefandi og veitir húðinni aukinn ljóma, fyllingu og dregur úr ásýnd fínna lína og hrukkna. Gelið hentar öllum húðgerðum, þar á meðal blandaðri og feitri húð. Nota má gelið eitt sér, eða á eftir Alda [ˈalːta] Essence Serum fyrir rútínu sem endurnýjar, nærir og verndar.
Dropp, Pósturinn eða sótt í verslun á Frakkastíg
Notkun
Þyngd
Innihaldsefni
Innihald
Ilmnótur
Sending og skil
Vörur keyptar í vefverslun. Um kaup í vefverslun gilda lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupunum án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á info@nomadstore.is innan frestsins og sendu vöruna til baka á Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík, eða komdu með hana í verslunina. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Við endurgreiðum kaupverðið, ásamt upphaflegum sendingarkostnaði, innan 14 daga frá því að varan berst okkur. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var. Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöruna til baka.
Skilarétturinn nær ekki til vara sem eru sérsmíðaðar eftir óskum kaupanda, svo sem skartgripa sem settir eru saman í Charm Bar, nema þær séu gallaðar.
Vörur keyptar í verslun. Vörum sem keyptar eru í verslun okkar má skila gegn framvísun kvittunar, séu umbúðir óskemmdar, og fæst þá inneignarnóta.