Frítt með Dropp á afhendingarstað ef keypt er fyrir 15.000 kr eða meira
Nomad
isen
×

Persónuvernd

Persónuverndarstefna Nomad


Nomad Ísland ehf. leggur áherslu á að fara vel með persónuupplýsingar viðskiptavina sinna. Í þessari stefnu kemur fram hvaða upplýsingum við söfnum þegar þú notar vefinn nomadstore.is, hvers vegna, hve lengi þær eru geymdar og hvaða rétt þú átt. Stefnan byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og fjarskiptalögum nr. 70/2022.

1. Ábyrgðaraðili

Nomad Ísland ehf., kt. 540818-0960
Frakkastíg 8F, 101 Reykjavík
Netfang: info@nomadstore.is
Sími: 537 5300

Fyrirspurnir og beiðnir um persónuupplýsingar má senda á info@nomadstore.is.

2. Hvaða upplýsingum við söfnum og hvers vegna

Pantanir. Þegar þú kaupir vöru á vefnum skráum við nafn, netfang, símanúmer, afhendingarmáta og heimilisfang eða afhendingarstað, ásamt athugasemd ef þú skrifar hana. Kennitölu biðjum við aðeins um þegar hennar er þörf, til dæmis vegna reiknings. Við notum upplýsingarnar til að afgreiða og senda pöntunina, hafa samband vegna hennar og sinna skilum og kvörtunum. Vinnslan byggir á samningi við þig.

Greiðslur. Kortagreiðslur fara fram hjá greiðsluþjónustu sem tekur við kortaupplýsingum beint. Nomad sér hvorki né geymir kortanúmer. Við fáum aðeins staðfestingu á greiðslu.

Fyrirspurnir. Ef þú sendir okkur skilaboð í gegnum form á vefnum vistum við nafn, netfang og skilaboðin svo hægt sé að svara þér. Til að verjast ruslpósti er IP-tala þín geymd í dulkóðuðu formi sem ekki er hægt að rekja til þín.

Póstlisti. Ef þú skráir þig á póstlista sendum við þér fréttir og tilboð. Skráningin tekur gildi þegar þú hefur staðfest hana með tölvupósti, og þú getur afskráð þig hvenær sem er með tengli neðst í hverjum pósti. Vinnslan byggir á samþykki þínu.

Bókhald. Upplýsingar um viðskipti eru varðveittar í bókhaldi samkvæmt lögum um bókhald nr. 145/1994.

3. Vefkökur og geymsla í vafra

Vefurinn notar fáar vefkökur og engar frá greiningarþjónustum á borð við Google Analytics. Við biðjum aðeins um samþykki fyrir því sem tengist auglýsingum. Allt annað þarf til að það sem þú biður um virki, og það er hvorki notað til að fylgjast með þér né selt öðrum.

Nauðsynlegar vefkökur:

  • store_lang man hvort þú valdir íslensku eða ensku. Gildir í eitt ár.
  • store_currency og store_ship_country muna gjaldmiðilinn og landið sem þú valdir, svo verð og sendingarmátar passi. Gjaldmiðillinn gildir í 180 daga, landið þar til vafranum er lokað.
  • __Host-nb_shop_session heldur þér innskráðum á „Mínar síður“ eftir að þú skráir þig inn með kóða úr tölvupósti. Gildir í 30 daga eða þar til þú skráir þig út.
  • __Host-nb_gift_lists sannar að þú eigir gjafalista sem þú bjóst til, svo aðeins þú getir breytt honum. Gildir í 400 daga.
  • nb_consent og nb_consent_seen muna svar þitt um vefkökur svo við spyrjum ekki aftur. Gilda í 180 daga.

Markaðssetning (aðeins með samþykki). Ef þú velur „Leyfa“ í borðanum um vefkökur gerist tvennt:

  • Meta-pixill (Facebook og Instagram) er virkjaður til að mæla árangur auglýsinga. Meta setur þá vefkökurnar _fbp og _fbc, sem gilda í 90 daga. Pixillinn er aldrei sóttur á síðu gjafalista né á greiðslu- og staðfestingarsíðum pöntunar.
  • Vefkakan nb_attr skráir, þegar þú kemur á vefinn af auglýsingu eða hlekk með herferðarmerkingu, hvaðan þú komst. Hún gildir í 30 daga og upplýsingarnar fara ekki til þriðja aðila.

Ef þú velur „Hafna“ er hvorugt notað og vefurinn virkar eins eftir sem áður.

Geymsla í vafranum. Karfan, óskalistinn og hönnun þín í Charm Bar eru vistuð í vafranum á tækinu þínu en ekki hjá okkur. Komir þú af gjafalista man vafrinn hann í þrjá daga, svo gjöf sem þú kaupir merkist á réttan lista. Upplýsingar sem þú slærð inn í afhendingarskrefinu eyðast þegar flipanum er lokað.

Kort og myndbönd. Kort frá Google er ekki sótt fyrr en þú smellir á „Sýna kort“, og þá setur Google sínar eigin vefkökur. Myndbönd frá YouTube eru ekki spiluð fyrr en þú smellir á þau. Forsíðumynd myndbands er þó sótt frá Google þegar síðan opnast.

Að breyta vali. Þú getur breytt svari þínu hvenær sem er með „Vefkökustillingar“ neðst á síðunni. Ef þú hafnar eftir að hafa leyft er vefkökum Meta og nb_attr eytt. Þú getur líka eytt vefkökum í stillingum vafrans, en þá tæmast karfan og óskalistinn líka.

4. Hverjir fá upplýsingarnar

Við seljum aldrei persónuupplýsingar. Eftirfarandi aðilar vinna upplýsingar fyrir okkar hönd og aðeins að því marki sem þarf:

  • Afhending: Dropp, Pósturinn og DHL fá nafn, heimilisfang eða afhendingarstað, símanúmer og netfang til að koma sendingunni til þín.
  • Greiðsluþjónusta: Straumur annast kortagreiðslur.
  • Rekstrar- og vefverslunarkerfi: kerfi sem hýsir vefverslunina, pantanir og bókhald Nomad.
  • Tölvupóstur: þjónustuaðili sem sendir tölvupósta frá vefnum.
  • Meta Platforms: aðeins ef þú hefur samþykkt markaðsvefkökur.

Þegar upplýsingar fara út fyrir Evrópska efnahagssvæðið byggir flutningurinn á viðurkenndum grundvelli, svo sem rammasamningi ESB og Bandaríkjanna um gagnavernd (Data Privacy Framework) eða stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB.

Upplýsingar eru einnig afhentar stjórnvöldum ef lög krefjast þess.

5. Hve lengi upplýsingar eru geymdar

  • Upplýsingar um pantanir og greiðslur eru geymdar í sjö ár frá lokum reikningsárs, eins og bókhaldslög krefjast.
  • Skilaboð úr fyrirspurnarformi eru geymd á meðan þeirra er þörf til að svara og fylgja erindinu eftir.
  • Netfang á póstlista er geymt þar til þú afskráir þig.

6. Öryggi

Öll samskipti við vefinn fara um dulkóðaða tengingu (HTTPS). Aðgangur að upplýsingum er takmarkaður við starfsfólk sem þarf á þeim að halda í starfi sínu, og þjónustuaðilar okkar eru bundnir vinnslusamningum.

7. Réttindi þín

Þú átt rétt á:

  • að fá að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig og fá afrit af þeim,
  • að fá rangar upplýsingar leiðréttar,
  • að fá upplýsingum eytt þegar ekki er lengur þörf á þeim eða lagaskylda kemur ekki í veg fyrir það,
  • að vinnsla verði takmörkuð eða að andmæla henni,
  • að fá upplýsingar sem þú lagðir fram afhentar á tölvutæku formi,
  • að afturkalla samþykki hvenær sem er.

Beiðnir sendast á info@nomadstore.is. Við svörum innan eins mánaðar.

Ef þú telur að ekki sé farið rétt með persónuupplýsingar þínar getur þú sent kvörtun til Persónuverndar, Laugavegi 166, 4. hæð, 105 Reykjavík, postur@personuvernd.is, sími 510 9600.

8. Breytingar

Stefnan er endurskoðuð þegar breytingar verða á vinnslu persónuupplýsinga. Nýjasta útgáfa er alltaf birt á þessari síðu ásamt dagsetningu.

Síðast uppfært 17. október 2026.