Um okkur

Nomad Reykjavík opnaði árið 2018 og hefur staðið á sama horni Laugavegar og Frakkastígs allar götur síðan. Verslunina reka Ingimar og Halla Líf, lítið fjölskyldufyrirtæki með einfalt markmið: að bjóða úrval af gjafavöru sem finnast ekki á hverju horni, á verði sem er sanngjarnt.
Nafnið Nomad völdum við af því að það lýsir okkur. Nomad þýðir ferðalangur, og þannig höfum við lifað, í ferðalögunum, á brimbrettum og í tímanum úti í náttúrunni, sem Ingimar hefur fangað í ljósmyndum sínum í gegnum tíðina. Sá bakgrunnur mótar vöruúrvalið í hillunum okkar. Við veljum vörur sem færa gleði og liti inn í hversdaginn og ýta um leið undir heilbrigðari lífsstíl: bækur af ýmsum toga, skartgripagerð, leikföng sem draga úr skjátíma og margt fleira.
Í versluninni finnið þið bækur, kerti, skartgripi og húðvörur ásamt heimilisvöru, skrauti og skemmtilegum gjöfum fyrir alla aldurshópa. Frá árinu 2023 höfum við einnig framleitt og hannað okkar eigin skartgripi, Tíbrá by nomad, auk annarrar hönnunar frá okkur sem nú fæst í verslunum víða um land og nokkrum erlendis.
Við vonum að þið njótið andrúmsloftsins sem við höfum skapað hér, nú og um ókomin ár. Takk fyrir stuðninginn og fyrir að versla við okkur.
Bestu kveðjur,
Nomad teymið